Jamm ég er nú ekki voða dugleg að skrifa inn hér. En þetta er helst að frétta. Fór í sveitina um helgina og það var bara fínt. Fór svo í ræktina um 7:15 í morgun. Bara fínt að mæta svona snemma meðan kallinn er heima. Fer aftur á morgun en þá ætla ég að fara fyrir 7 kannski 15 mín í. Lítið að frétta svo sem maturinn gengur lala og ræktin líka en ég er þó farin að mæta 1-2 í viku sem er framför en stefni enn á að mæta minnst 4 sinnum. Jæja farin að hjálpa við heimalærdóm.
Hey já fékk launahækkun í dag. Vissi ekkert af því fyrr en bossinn dró mig til hliðar og hvíslaði því að mér. Bara snilld fékk aðra launahækkun fyrr í sumar. Fékk þessa þar sem ég stend mig svo vel í vinnunni sagði hún. Gaman að sjá launaseðilinn þegar hann kemur. Allt auka er gott. Veit ekki um neinn sem myndi neita smá auka pening