Er bara nokk sátt. Búin að missa 2 kg núna síðan ég byrjaði á töflunum og það án hreyfingar. Ætla aftur í Gravity en bara ekki stilla bekkinn svona hátt aftur. Bara sætta mig við það að ég er þung og þar að leiðandi erfitt að tosa sjálfa mig upp :D  . En er sem sé búin að skrá mig í næstu 2 tíma í þessari viku. Hlakka til að sjá hvort þetta henti mér bara ekki vel. Því ef svo þá stefni ég á námskeið sem er 3x í viku. Jæja þarf að fara vinna. Pásan búin. Talvan var biluð og skjárinn dauður en er komin í gang aftur þannig að ég fer að skrifa oftar. En er samt með samning við betri helminginn um að hanga ekki í tölvunni þegar hann er í landi svo  ég skrifa ekki mikið þá.

Bestu kveðjur 70kg

P.S bara 28 dagar í jólin :D

Strengir dauðans í heimsókn í dag. Fór sem sé í Gravity tíma í gær. Fíla þá tíma. En þegar ég vaknaði í morgun finn ég þessa líka massívu harðsperrur í öxlum/upphandleggjum. Sérstaklega hægra megin. Fyndnast ever að sjá sjálfa mig reyna koma brjóstahaldaranum á og koma mér í bolinn. Svo að borða morgunmat olli hláturskasti hjá betri helmingnum. Annað kast kom svo í bílnum þegar ég samviskusamlega reyndi að koma mér í beltið sem tókst á endanum. Ég er sátt og horfi á vigtina lækka hægt en rólega dag eftir dag.

Kveðja 70kg sem fer í annan Gravity á morgun.

síðan ég byrjaði á þessum lyfjum komnir 6 dagar. Er strax búin að léttast um 1 kg. Svo ég vona þetta hjálpi. Veit þetta er ekki eina lausnin en í bland með smá hreyfingu líka. Fer í Gravity tíma í kvöld og hlakka til. Ef mér líst vel á þetta fer á kannski á námskeið sem standa í 1 mán í einu.

Læt heyra af mér. Kallinn í landi og því minni hreyfing hér og á rúntinum. Finnst samt allir vera standa sig nokkuð vel. Kveðja ÉG

Er hætt að fá mér nammi á kvöldin. Svo reyni ég að  borða hollt í vinnunni. Það er aðalega frá 3 og þar til ég fer að sofa sem er strögl. En eins og ég sagði er kvöldnartið hætt í bili alla vega. Talaði við lækninn minn. Hann sagði mér að prufa tiltölulega nýtt lyf við offitu. Hlakka til að sjá hvernig virkar. Fletti því upp á netinu og fann fullt af góðum sögum. Þetta á að virka þannig að maður nýtur þess ekki að borða og gerir því minna af því og einnig sest þetta á fitusekkina eða hvað sem það heitir og hamlar inntöku fitu í þá. Keypti einn mánuð og sjáum til hvernig fer. Jæja best að borða morgunmatinn og fara koma sér í vinnu.

hvað ég á svo sum að skrifa. Hefur gengið dæmalaust illa. Komin aftur í það sem ég var hér fyrir 3 árum og finn hvað það fer illa með mig. Bæði andlega og líkamlega. Þarf að fara drattast í ræktina. Kvíð svoldið fyrir aðventunni. Verð að játa á mig að hafa borðað næstum 6 kassa af nóa síríus konfekti (1kg) í fyrra á aðventunni. Verður reyndar alltaf ca 1/3 eftir af molum sem mig finnast vondir. Er svo hrædd um að gera þetta aftur. VIL ekki. Svo er ég að borða þó ég sé svo ekkert svöng bara til að borða held ég. Vinkona mín ætlar að mæta með mér í ræktina en ég veit ekki hvernig það fer þar sem hún er meira fyrir svona tíma en ég fyrir salinn. Höndla nottla ekki of mikið fólk eða palladæmi og svoleiðis.

Jæja ætli þetta sé ekki orðið nóg þunglyndisklessa í bili. Ætla líka að heyra í doksa með að fá kannksi aftur fitubollu töflurnar. Virkuðu vel síðast til að koma mér af stað.  Kveðja ÉG

Gengur ágætlega. En verð að viðurkenna að mig langar rosalega að hlaupa út í bakarí eða búðina núna. Sit inn á skrifstofunni minni og er að sötra sheikinn minn. Því mér finnst óþæginlegt að borða hjá hinum. Ein þolir ekki lyktina og hin starir á mig. Þannig að hér sit ég þar til ég er búin með sheikinn svo fer ég inn í kaffistofu. Tala kannski aftur í kvöld. En fyrri hluti dagsins er á réttu róli :D

gekk bara ágætlega. Stóð kannski ekki alveg við matarplanið en betra hefur það ekki verið í laaangan tíma. Vona ég verði nógu sterk til að láta daginn á morgun ganga svona líka. Svo stolt þar sem ég er búin að vera með massívan hausverk og vöðvabólgu. Og það er til gotterí í húsinu. Þarf að fara og hreinsa allt svoleiðis út.

Húsið held ég að endurspegli oft hvernig mér líður. T.d ef ég er voða ósátt og gengur illa eins og undanfarið lítur það út eins og hiroshima og nagasaki líka(pottþétt vitlaust skrifað). EN ég tók samt til í dag. Ekki nóg en samt nóg til að líða aðeins betur og ekki finnast ég vera klúðra öllu.

Kveðja ÉG krossleggja fingur fyrir mig með morgundaginn !!

Ég hef hálfpartinn verið að fela mig. Ekki fyrir ykkur heldur mér. Er nefnilega aftur komin í það þyngsta sem ég hef farið í. Samt ekki fallin í þetta þunglyndi sem hrjáði mig þá. Vildi bara að ég væri ekki svona mikill aumingi og gunga. Liggur við að ég geri ekki neitt því ég er búin að ákveða að svona verði ég. Mér sem gekk svo vel var á tímabili komin í 103 og sá fram á að komast í 2ja stafa tölu. Það er svaka uppgjöf í gangi hérna megin. Sem er ekki rétt. Sonur minn og maður eiga rétt á að ég sé heilbrigð og geti gert hluti með þeim, og ég tala nú ekki um hvað ég á rétt á. Skil ekki hvað er að mér. Vildi ég gæti komið mér í einkaþjálfun aftur þó ekki nema bara koma mér af stað. Ætla að byrja aftur á herbalife því mér líður vel á því en hef ekki tekið það inn í langan tíma núna. Var að horfa á þáttinn Listin að lifa held ég að hann heiti. Sver ég er akkurat hinn endinn á þessarri stelpu.

Svo margt smátt kemur fyrir og mér finnst ég verði að borða til að fagna, syrgja og bara til að líða vel. Svo eftir á líður mér bara alls ekki vel. Svo skrifa ég ekki hér inná því ég vil ekki að fólk viti hvað mér gengur illa. Hver vill svo sem lesa um svoleiðis það er skemmtilegra að hrósa en að hugga.

Sonur minn var að horfa með mér á part af Biggest Looser og fór að lesa textann og sagði vá mamma missti þessi kall 23 kíló? Já það gerði hann sagði ég. Veistu mamma ef þú missir 23 kíló verðuru smá minna feit.  Fannst þetta bæði krúttlegt og hrollvekjandi því ég vil ekki að hann sé að pæla í þyngd.  

Æ ég er bara í smá messi núna. Takmarkið að mæta í ræktina eftir vinnu á morgun.

Síðasta vika var letin uppmáluð. En í dag gat ég ekki annað en svarað kalli líkamans um hreyfingu þar sem ég var farin að fá í bakið aftur og svaf þar að leiðandi lítið og illa í nótt. Svo í ræktina fór ég og púlaði og gerði flestar þær æfingar sem ég kann varðandi bak. Svo skal ég fara aftur á morgun og byrja á gamla prógraminu mínu þó mér þyki það reyndar voða leiðinlegt. Ekkert meir að frétta hér. Alltaf þessi eilífa barátta milli mín og mín. En einn dagin vil ég vinna….

Talaði við lækni strax í gær og fékk sýklalyf. Það er frábært fyrir utan einn galla. Mér er svo óglatt síðan ég byrjaði að taka þær. En ég kýs það fram yfir hitt. Bara 4 dagar eftir. Fann sko slatta mun strax í gærkveldi. Svo ég fer pottþétt í ræktina á mánudaginn.

Það hafa

  • 5,857 kíkt hingað :D

 

desember 2009
M Þ M F F L S
« jan    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031