Ég er 25 ára með 1 barn og mann. Ég hef verið 40-50 kg of þung núna síðustu 6-7 árin. Var alls ekki of þung sem barn né unglingur en þegar ég var um 17-18 byrjaði ég að þyngjast og fór úr 65 kg upp í 120kg á ca 2-3 árum. Það er nottla ekki eðlilegt. Ég þoli ekki að vera svona, á tímabili var ég líka farin að pæla í magaaðgerðinni en hana hef ég aldrei viljað fara í því ég vil gera þetta sjálf og tilhugsunin um aðgerð hræðir mig. Svo vil ég líka geta borðað það sem ég vil einstaka sinnum. Ég hef sett mér 1 ár til að breyta þessu og ef ég get losnað við þó ekki væri nema 10kg þá myndi ég hætta alveg að hugsa um aðgerðina því þá væri ég ekki nema 4 ár að ná þessu af mér og ég vil það frekar.

Við erum tvær sem ætlum að bloggast á til að hvetja og styðja hvor aðra og ég held það komi til með að hjálpa til. Svo er bara að koma sér í ræktina.