Búin að taka stóra ákvörðun, búin að velta henni fyrir mér í nokkurn tíma. Ég ætla að fara í magabandsaðgerð. Verst er að þeir gera þetta ekki á íslandi og því þarf að fara til Bretlands. Nú er bara að smala saman seðlunum. Ég ætti að geta reddað þessu á um 2 árum svo ég get lifað það af. Væri minnsta mál ef við hefðum ekki bæði ákveðið að skella okkur í skóla á sama tíma núna.

Fór út að hjóla með köllunum mínum, hjóluðum 9 km sem var ekki svo slæmt nema meiri hlutinn af leiðinni var aflíðandi og ég með lítið sem ekkert þol. Þarf pottþétt að skella mér í ræktina á miðvikudaginn.