Ekkert varð úr þjálfun í dag, akkúrat þegar ég var á leiðinni út um hurðina hringdi síminn og ég ákvað að sjá hver þetta væri. Svaraði auðvitað þegar ég sá að þetta var skólinn hjá guttanum. Gormurinn hafði hlaupið á staur og kastast aftur fyrir sig og skallað malbikið þannig að hann hlaut tvær kúlur aðra að framan og hina að aftan. Endaði með hann upp á FSA um kvöldið bara til að vera viss.
Fór og hitti lækninn á Kristnesi. Var mjög fegin að frétta að það er alla vega 1-2 ára biðlisti. Því það gefur mér meiri tíma til að gera þetta sjálf. Var samt mjög ánægð þegar hann tók blóðþrýstinginn og sagði hann vera 130/80 því hann var 135/95 fyrir viku síðan og það er of hátt.
