Jæja fór í gær með magann einhvers staðar í hnút. Leit yfir hópinn og skal segja ykkur sumar þarna eiga ekki að vera finnst mér efast stórlega að hægt sé að taka 30 kg af þeim. Nema þær endi eins og Nicole Richie. En og lét vigta og mæla og það minnti mig á hvað ég þoli ekki vigtina þeirra því það munar alltaf um 2 kg að hún er meira en mín. En svo byrjaði tíminn og ég er rosalega feimin og þori ekki að hoppa og skoppa svona innan um fólk, en viti menn ég gat það. Eróbik er allt í lagi nema ég átti smá erfitt með að fylgjast með hvar við vorum þ.e. ég datt oft út. Samt ég held áfram og næsti tími er á morgun. Nú er bara að koma matarlegu hliðinni í lag líka.
WHIS ME LUCK I NEED IT

2 comments
Comments feed for this article
janúar 16, 2008 kl. 9:20 am
Gamli sveppur
Jamm, en sporin æfast með tímanum. Ég var í hópi fyrir digra í leikfimi í tvo vetur og maður var eins og auli til að byrja með. Ég á mjög erfitt með að halda takti þannig að mér svipar til karla hvað það varðar, ekki mikið fyrir flókin spor. Svo er maður ekkert að pæla í hinum í hópnum nema etv. til að ná sporunum. En þetta varð mjög gaman. Í okkar hóp var reyndar grönn manneskja sem kom þarna með digrum ættingja sínum. Síðan getur sálin verið digur eða þrekið verið á við það hjá digrum manni og leikfimin því hentað þótt búkurinn sé grennri. Gangi þér vel, Gamli sveppur
janúar 16, 2008 kl. 4:19 pm
EllyMae
Frábært hjá þér
Komin af stað og það er oft erfiðast!