Námskeiðið byrjar á morgun. Er búin að kaupa nýjar buxur og er til en VÁ hvað ég er stressuð. Er alltaf svona, fer að hallast að því að ég sé mannafælin sem er ekki svo langsótt. Þettar er bara fyrir fólk sem er +30 kg en samt er ég smeik við hvað veit ég ekki alveg. Jæja set svo inn hér á morgun eða hinn eftir að ég er búin að fara í einn tíma
Það hafa
- 5,864 kíkt hingað :D

4 comments
Comments feed for this article
janúar 14, 2008 kl. 1:56 pm
EllyMae
Gangi þér vel

Ég kannast vel við að vera svona stressuð fyrir námskeið. Ég er alltaf að spá hvortr ég verði sú lélegasta og fleira þannig…get lofað þér að um leið og tíminn byrjar þá gleymist stressið
Kv. EllyMae
janúar 15, 2008 kl. 7:58 pm
Búría
Þú átt eftir að standa þig frábærlega. Annars kann ég rosa vel við nýja lúkkið á síðunni þinni, það er svo bjart yfir þessu núna
janúar 15, 2008 kl. 8:49 pm
EllyMae
Fyndið, ég var að lesa “Ég um mig” á síðunni þinni, ég gæti alveg eins gert copy paste af því inn á mína síðu, nema að ég er barnlaus. Alltaf gaman að geta fylgst með einhverjum sem er í sömu sporum og maður sjálfur.
Kv. EllyMae
janúar 15, 2008 kl. 9:28 pm
75kg
Gangi þér vel og góða skemmtun á námskeiðinu, ábyggilega mjög skemmtilegt! Þú getur þetta!