You are currently browsing the monthly archive for janúar, 2008.
Og eins og síðustu viku þá missti ég 700 gr af fitu í fitumælingu, en ekki mikið á vigtinni samt einhver 4-500 gr. Svo núna verð ég að vera duglegri við að borða hollt.
ég bara spyr. Með kvöldmatinn. Get ekki ákveðið mig hvað skal hafa og hvað sé réttur matur því ég er líka gikkur dauðans. Gengur vel frá morgni fram að/yfir kaffitíma svo fer allt í rugl.
En alla vega komin með lélegasta stutttíma markmið sem ég hef gert og ég tek það svoleiðis í rassgatið vona ég. Talað er um að fólk missi um 500gr á viku í ræktinni svo ég stefni á að missa 4 kg á þessum 8 vikum vil nottla missa meir en þetta er markmið. Og ég skal standa við það. Þegar ég næ því kaupi ég mér nýja flíspeysu og ekki fyrr
Jæja sem sé búin að ákveða að vigtun sé laugardögum. Var vigtuð og fitumæld í dag. Vigtin fór niður um tæpt 1 kg hjá henni en á minni um 2 kg. Og samkvæmt fitumælinunni er farið 700 gr fita. Svo ég er ánægð. Laugardagur í dag og ég er ekki viss hvort mig langi í nammi, kannski sleikjó eða ekki kemur í ljós. En byrjaði sem sé líka á Herba aftur í morgun. Nú er ég farin í sturtu tala seinna
KV 70kg
Jæja búin að fara aftur. Nú er bara reyna borða rétt. Hef verið svo þreytt undanfarna daga að ég hef farið í rúmið strax eftir vinnu og lagt mig (kl 15 strax og strákurinn fer út að leika sér)og svo snemma um kvöldið aftur. Og þar af leiðandi aðeins borðað 3 sinnum yfir daginn. Hollt en ekki nógu oft.
Maturinn í dag.
kl 10 skál af spelt kornflögum og 1 flatbrauð með smjöri mjög litlu
kl 12 skyr.is með apríkósum og vanillu og 1 flatbrauð með smjöri litlu
kl 19 1 skál makkarónugrautur með smá kanilsykri
Jæja fór í gær með magann einhvers staðar í hnút. Leit yfir hópinn og skal segja ykkur sumar þarna eiga ekki að vera finnst mér efast stórlega að hægt sé að taka 30 kg af þeim. Nema þær endi eins og Nicole Richie. En og lét vigta og mæla og það minnti mig á hvað ég þoli ekki vigtina þeirra því það munar alltaf um 2 kg að hún er meira en mín. En svo byrjaði tíminn og ég er rosalega feimin og þori ekki að hoppa og skoppa svona innan um fólk, en viti menn ég gat það. Eróbik er allt í lagi nema ég átti smá erfitt með að fylgjast með hvar við vorum þ.e. ég datt oft út. Samt ég held áfram og næsti tími er á morgun. Nú er bara að koma matarlegu hliðinni í lag líka.
WHIS ME LUCK I NEED IT
Námskeiðið byrjar á morgun. Er búin að kaupa nýjar buxur og er til en VÁ hvað ég er stressuð. Er alltaf svona, fer að hallast að því að ég sé mannafælin sem er ekki svo langsótt. Þettar er bara fyrir fólk sem er +30 kg en samt er ég smeik við hvað veit ég ekki alveg. Jæja set svo inn hér á morgun eða hinn eftir að ég er búin að fara í einn tíma
Nibb ég skal ekki. Þyngdist ekkert um jólin en sit bara enn með mín aukakíló. Hef reyndar lifað á samlokum síðustu vikuna. Svo ég skráði mig á svona lífstílsnámskeið. Stendur yfir í 8 vikur og er 3 sinnum í viku. Bara fyrir fólk +30kg. Kvíður samt fyrir. Jæja efast svo sem um að einhver kíki hér ennþá en ég ætla samt að skrifa bara spurning hversu dugleg ég verð. Námskeiðið byrjar á mánudaginn í næstu viku.
