Borðaði svo sem ekki mikið en ekki hollt heldur. En þyngdist um ca 300 gr. En græt ekki. Eins og sést fylgist ég vel með vigtinni svo ég sjái hvað er að henta og hvað ekki. Gengur aðeins verr eftir að kallinn fór á sjóinn en það skal ekki halda áfram. Er svo erfitt að finna eitthvað að elda fyrir mig og einn stúf sem étur á við mús. En eins og ég segi ég skal ég skal og ég skal. Jæja best að nota pásuna í eitthvað annað en að blogga. Talvan biluð eins og svo oft áður og í viðgerð en ókeypis þetta skiptið.
Það hafa
- 5,857 kíkt hingað :D

5 comments
Comments feed for this article
desember 5, 2007 kl. 3:15 pm
Dögg
Alltaf erfitt að elda bara fyrir tvo. Kannast við það. En þú stendur þig vel
desember 5, 2007 kl. 3:38 pm
Búría
Þú getur þetta alveg. Það tekur líka smá tíma að læra á hvað hentar manni, finna þetta jafnvægi.
desember 9, 2007 kl. 11:19 pm
superbarbie
Er kallinn ekki í mánuð úti á sjó?
Veistu hvað þú skalt gera, vertu geðveikt dugleg á meðan hann er úti á sjó og þegar hann kemur til bara þá bara vá hvað þú ert orðin flott!
Þú ert svo dugleg elskan, haltu áfram svona!!
desember 11, 2007 kl. 12:15 pm
EllyMae
Frábær ráðlegging hjá superbarbie
væri ábyggilega ótrúlega gaman að geta tekið á móti honum eftir svona dugnaðartímabil, full af sjálfstrausti 
Ætla að leyfa mér að fygljast með þér, setti tengil á þig af minni síðu…er ný í þessu.
Kv. EllyMae
desember 28, 2007 kl. 6:21 pm
Inga
Hæ hæ
Rakst á síðuna þína og las hana alveg frá upphafi til enda. Mér finnst þú ótrúlega dugleg – er sjálf í svipuðum sporum og þú – alltaf að reyna að koma mér af stað aftur. Að lesa síðuna þína var mér mikil hvatning að koma mér aftur úr sporunum og ég kem örugglega til með að fylgjast með þér.
Gangi þér sem allra best.