Fór sem sé í Gravity aftur áðan. Var annar kennari en samt gaman. Fékk smá bakþanka þegar ég var mætt á staðin þar sem vinkona mín ætlaði með mér en barnið hennar veiktist svo ég fór ein. Það var bara fínt. Stillti bara eftir minni getu og reyndi sem minnst að horfa í kringum mig til að sjá hvað hinir gætu mikið meira en ég. Svo er bara að mæta aftur á fimmtudag. Er alla vega búin að skrá mig. Hlakka smá til. Verður svo gaman að sjá hve langt ég næ vigtinni niður fyrir jólin án þess að vera neitt í neinu svakalegu átaki. Bara borða minna og hollara og hreyfa sig nokkru sinnum í viku. Alltaf þegar ég ætla taka allt með trompi endar það ekki vel svo prufum þetta núna.
Það hafa
- 5,843 kíkt hingað :D

3 comments
Comments feed for this article
nóvember 28, 2007 kl. 1:51 pm
Búría
Glæsilegt hjá þér. Flott að drífa þig bara ein og vera ekkert að spá of mikið í hinum. Ég einmitt geri þetta þessi fáu skipti sem ég druslast í spinning
nóvember 28, 2007 kl. 6:24 pm
Heiða
Tek undir með Búríu. Þetta snýst um að gera varanlegar breytingar… og það tekur tíma! Svo skiptir engu máli hvað hinir geta mikið meira eða minna en þú
Eina manneskjan sem þú getur borið þig saman við ert þú sjálf. Einblíndu bara á þinn árangur og þína getu
nóvember 28, 2007 kl. 11:04 pm
superbarbie
Til hamingju með þetta! Þú stendur þig rosalega vel!
Hvað kostar í Gravity, hvar ferðu í það? Hvernig tímar eru Gravity?