You are currently browsing the daily archive for nóvember 27th, 2007.
Fór sem sé í Gravity aftur áðan. Var annar kennari en samt gaman. Fékk smá bakþanka þegar ég var mætt á staðin þar sem vinkona mín ætlaði með mér en barnið hennar veiktist svo ég fór ein. Það var bara fínt. Stillti bara eftir minni getu og reyndi sem minnst að horfa í kringum mig til að sjá hvað hinir gætu mikið meira en ég. Svo er bara að mæta aftur á fimmtudag. Er alla vega búin að skrá mig. Hlakka smá til. Verður svo gaman að sjá hve langt ég næ vigtinni niður fyrir jólin án þess að vera neitt í neinu svakalegu átaki. Bara borða minna og hollara og hreyfa sig nokkru sinnum í viku. Alltaf þegar ég ætla taka allt með trompi endar það ekki vel svo prufum þetta núna.
