Er hætt að fá mér nammi á kvöldin. Svo reyni ég að borða hollt í vinnunni. Það er aðalega frá 3 og þar til ég fer að sofa sem er strögl. En eins og ég sagði er kvöldnartið hætt í bili alla vega. Talaði við lækninn minn. Hann sagði mér að prufa tiltölulega nýtt lyf við offitu. Hlakka til að sjá hvernig virkar. Fletti því upp á netinu og fann fullt af góðum sögum. Þetta á að virka þannig að maður nýtur þess ekki að borða og gerir því minna af því og einnig sest þetta á fitusekkina eða hvað sem það heitir og hamlar inntöku fitu í þá. Keypti einn mánuð og sjáum til hvernig fer. Jæja best að borða morgunmatinn og fara koma sér í vinnu.
Það hafa
- 5,857 kíkt hingað :D

6 comments
Comments feed for this article
nóvember 15, 2007 kl. 2:59 pm
Lilja
Þetta hlýtur að hjálpa þér í baráttunni. Annars er eitt mjög gott ráð sem virkar fyrir mig til að minnka nartlöngunina, en það er að fara í ræktina akkurat á þeim tíma sem þörfin er sem mest
nóvember 15, 2007 kl. 4:02 pm
70kg
það virkar ekki því hún er mest á kvöldin og þá er stráksi sofandi.
nóvember 15, 2007 kl. 5:03 pm
Heilsufrik
Gott að það er farið að ganga betur hjá þér.
Hvað heitir þetta lyf sem læknirinn þinn benti þér á?
nóvember 15, 2007 kl. 8:21 pm
Dídí
Hæhæ, rakst á þig á bloggrúntinum og langar bara að kvitta fyrir mig.
Eitt sem ég var að uppgötva sem er frábært í nartþörfinni: granatepli!
Þú skerð það í helming og svo siturðu fyrir framan sjónvarpið og pikkar berin út í klukkutíma eða meira! Mjög gott, mér finnst bara eins og ég sé að tína nammi upp úr nammipoka.
nóvember 15, 2007 kl. 11:15 pm
70kg
Lyfið sem ég er að prufa núna heitir Acomplia. Á víst að vera betra en Reductil sem ég prufaði í fyrra sem reyndist mjög vel.
nóvember 19, 2007 kl. 9:00 pm
Sigríður Hjördís
Það verður gaman að sjá hvernig þér gengur með þetta lyf.