You are currently browsing the daily archive for nóvember 15th, 2007.
Er hætt að fá mér nammi á kvöldin. Svo reyni ég að borða hollt í vinnunni. Það er aðalega frá 3 og þar til ég fer að sofa sem er strögl. En eins og ég sagði er kvöldnartið hætt í bili alla vega. Talaði við lækninn minn. Hann sagði mér að prufa tiltölulega nýtt lyf við offitu. Hlakka til að sjá hvernig virkar. Fletti því upp á netinu og fann fullt af góðum sögum. Þetta á að virka þannig að maður nýtur þess ekki að borða og gerir því minna af því og einnig sest þetta á fitusekkina eða hvað sem það heitir og hamlar inntöku fitu í þá. Keypti einn mánuð og sjáum til hvernig fer. Jæja best að borða morgunmatinn og fara koma sér í vinnu.
